Advania viðhengjageymsla í Azure

Advania Attachment Storage in Azure

Lykilvirkni

Með þessu er hægt að spara dýrmæt gagnapláss í Dynamics 365 Business Central en gagnaplássið í Microsoft Azure er mun hagkvæmara.

  • Geymsla viðhengja í gagnagrunni í skýinu (Azure).
  • Þetta geta bæði verið viðhengi sem eru skönnuð inn eða hengd handvirkt við skjöl t.d. úr tölvupósti

Uppsetning

Áður en hægt er að nota lausnina þarf að fara í gegnum ákveðna uppsetningu. Við leiðum þig í gegnum skrefin sem þarf að klára þannig að þú getir byrjað fljótt og örugglega.

Uppsetningarskjal

Verð

Mánaðarverð vörunnar er reiknað út frá fjölda notenda með úthlutuð Business Central leyfi.

Ótakmarkaður notandi: 2.500 kr. án vsk.

Viltu prufa?

Advania Attachment Storage in Azure er hægt að prufa frítt með því að sækja viðbótina í AppSource hjá Microsoft, beint inn í Business Central.
Ef viðbótin hentar er svo lítið mál að virkja áskriftina.

Prufaðu frítt
Hvernig sæki ég viðbót?
er eitthvað annað sem þú vilt læra?

Kennslumyndbönd

Hér er farið yfir hvernig Advania Azure Attachement Storage er sett upp.
Hér er farið yfir fyrstu skrefin við notkun á Advania Azure Attachment Storage.

Viltu aðstoð við uppsetningu?

Advania býður upp á fast verð í uppsetningu á öllum Business Central lausnum sínum. Ef myndböndin eru ekki nóg eða þú vilt einfaldlega fá aðstoð, þá geturðu fengið fast verð í það.

Eftirfarandi er gert þegar Advania viðhengjageymsla í Azure er sett upp út frá föstu verði.

  • Virkja app fyrir Azure skjalageymslu
  • Grunngögn Advania fyrir Azure skjalageymslu lesin inn.

Kennslupakki

  • Uppsetning á Microsoft Azure Storage Explorer
  • Uppsetning og tenging við eitt BC fyrirtæki
  • Sannreyna tengingu á milli Azure skjalageymslu og BC fyrirtækis
  • Kennsla við meðhöndlun á viðhengjum, viðhengjalista og vefslóðum fyrir skjöl

Verð í uppsetning

Verð: 96.000 kr. án vsk.