Advania launakerfi

Advania Payroll

Lykilvirkni

Öll almenn virkni fyrir launakerfi.

  • Tekur á ýmsum flækjustigum í launaútreikningi.
  • Rafræn samskipti við RSK.
  • Rafræn skil launatengdra gjalda.
  • Innlestur frá ýmsum tímaskráningarkerfum mögulegur í gegnum textaskrár.
  • Tölfræði tekin út með Launaskema og Excel skýrslum.

Uppsetning

Áður en hægt er að nota lausnina þarf að fara í gegnum ákveðna uppsetningu. Við leiðum þig í gegnum skrefin sem þarf að klára þannig að þú getir byrjað fljótt og örugglega.

Uppsetningarskjal

Verð

Mánaðarverð vörunnar er reiknað út frá fjölda notenda með úthlutuð Business Central leyfi.

Ótakmarkaður notandi: 4.000 kr. án vsk.

Viltu prufa?

Advania Payroll er hægt að prufa frítt með því að sækja viðbótina í AppSource hjá Microsoft, beint inn í Business Central.
Ef viðbótin hentar er svo lítið mál að virkja áskriftina.

Prufaðu frítt
Hvernig sæki ég viðbót?
er eitthvað annað sem þú vilt læra?

Kennslumyndbönd

Hér er farið yfir fyrstu skrefin í notkun á Advania Payroll.
Hér er farið í gegnum uppsetningu á Advania Payroll.

Viltu aðstoð við uppsetningu?

Advania býður upp á fast verð í uppsetningu á öllum Business Central lausnum sínum. Ef myndböndin eru ekki nóg eða þú vilt einfaldlega fá aðstoð, þá geturðu fengið fast verð í það.

Eftirfarandi er gert þegar Advania launakerfi er sett upp út frá föstu verði.

  • Virkja app fyrir launakerfið.
  • Grunngögn Advania fyrir launakerfið lesin inn.
  • Vefinnheimtuaðilar og vefsjóðir lesnir inn.
  • Aðgangsheimildir settar á einn notanda og launakerfi læst.

Kennslupakki:

  • Uppsetning og kennsla við að stofna einn launamann.
  • Uppsetning og kennsla við að stofna einn kjarasamning.
  • Uppsetning og kennsla við að stilla einn lífeyrissjóð á launamann.
  • Uppsetning og kennsla við að stofna einn launaflokk.
  • Uppsetning og kennsla við að stofna starf á launamann.
  • Uppsetning og kennsla við að setja upp einn lífeyrissjóð, svo hægt sé að senda skilagreinar rafrænt.
  • Uppsetning og kennsla við að stofna og bóka eina launaútborgun.
  • Uppsetning og kennsla við að senda launaseðla rafrænt í heimabanka launamanns.
  • Uppsetning og kennsla við að senda skilagreinar fyrir eina útborgun.
  • Kennsla við að hækka samningsbundna hækkun á einum kjarasamningi.
  • Kennsla við að fara í gegnum eina bakfærslu á launaútborgun.

Verð í uppsetning

Verð: 196.000 kr. án vsk.

Við erum stöðugt að betrumbæta vörurnar okkar

Nýjustu útgáfurnar