Claude og Business Central : gögnin þín á mannamáli

Með MCP-þjóni Business Central getur Claude lesið og greint gögn beint úr kerfinu. Þú spyrð á venjulegu máli og færð svör, myndrit og samantektir, alltaf innan þinna aðgangsheimilda.

Opinn staðall
Model Context Protocol (MCP), sem Microsoft styður í Business Central
Þínar heimildir
Claude sér aðeins það sem þú hefur aðgang að
Engar breytingar án leyfis
Stjórnandi getur leyft breytingar ef þörf er á
Rekjanlegt
Allar aðgerðir eru skráðar á notandann
Claude

claude.ai, Claude Desktop eða Claude Code

→

Innskráning
Entra ID

BC MCP þjónn

mcp.businesscentral
.dynamics.com

Þjónusta frá Microsoft

→

Umhverfi og
fyrirtæki

Business Central

Þitt umhverfi og fyrirtæki, með MCP-stillingu sem stýrir aðgangi

GREITT EFTIR NOTKUN

Hvað Claude getur gert

Möguleikar

  • Lesið færslur, t.d. viðskiptavini, vörur og sölupantanir
  • Svarað spurningum á venjulegu máli út frá BC-gögnum
  • Unnið greiningar, myndrit og síður sem hægt er að deila
  • Stofnað, breytt og bókað færslur, ef stillingin leyfir það
  • Keyrt lesfyrirspurnir beint á gögnin með Data Query Tools

Öryggi og stjórn

  • Sjálfgefna stillingin leyfir aðeins lestur
  • Stjórnandi þarf sérstaklega að leyfa breytingar fyrir hvert API
  • Claude sér aldrei meira en innskráði notandinn
  • Allar aðgerðir eru skráðar á notandann
  • Data Query Tools geta aðeins lesið, aldrei breytt

Dæmi um spurningar: „Hverjir eru 10 stærstu viðskiptavinirnir eftir veltu?“ · „Hvaða reikningar eru komnir fram yfir eindaga?“ · „Berðu saman söluna í ár og í fyrra eftir mánuðum.“

Dæmi um spurningar

Hvað er hægt að spyrja um?

Hér eru dæmi um spurningar sem Claude getur svarað beint úr Business Central.

Fjármál

  • Hvaða viðskiptamenn eru komnir yfir lánamörk?
  • Hvað þarf að greiða í þessari viku eða þeirri næstu?
  • Eru opnar greiðslur sem passa við opna reikninga og hægt er að jafna?
  • Hvaða bankafærslur eru óafstemmdar?

Greining og eftirlit

  • Finndu óvenjulegar færslur, til dæmis háar upphæðir, handfærslur, mikinn afslátt eða bókanir um helgar.
  • Er einhver vinnsluröð í villu í BC?
  • Er meiri sala þegar það rignir ekki í Reykjavík?Með veðurgögnum af vefnum

Samantektir

  • Taktu saman yfirlit um viðskiptamann 30000 – School of Fine Art, með viðskiptasögu, þróun og ógreiddum reikningum, sett upp myndrænt til að sýna viðskiptavininum.
  • Búðu til mælaborð fyrir stjórnarfund.

Prófanir og þróun

Ef stjórnandi hefur leyft breytingar

  • Búðu til 100 viðskiptamenn, 100 vörur með birgðum og önnur prufugögn.
Dæmi um raunverulega notkun

Claude var tengt við Business Central MCP þjóninn og fékk eina spurningu á íslensku. Hvorki þurfti útflutning í Excel né skýrsluhönnun.

Það sem Claude gerði
1

Fann fyrirtækið CRONUS IS í gegnum MCP þjóninn

2

Sótti 1.487 bókaðar fjárhagsfærslur á rekstrarlykla

3

Flokkaði þær í tekjur, kostnaðarverð, rekstrargjöld og afskriftir

4

Fann og útskýrði frávik, t.d. innlestur opnunarbirgða, og hélt þeim utan útreikninga

5

Útbjó gagnvirka síðu með lykiltölum, myndritum og rekstrarreikningi

TEKJUR

53,8 m.kr.
des 2024 – sep 2026

FRAMLEGÐ

21,6%
Lægst í feb 2026

HAGNAÐUR

11,5 m.kr.
Án opnunarbirgða

JAN-ÁGÚ 2026

−12,3%
Tekjur miðað við sama tímabil 2025

Rekstrarreikningur eftir mánuðum

Í þúsundum króna
MánuðurTekjurKostnaðarverðFramlegðFramlegð %RekstrargjöldAfskriftirHagnaður
desember 2024–––––44−44
janúar 20252.3171.80751022%––510
febrúar 20252.6912.09959222%––592
mars 20253.3492.61273722%––737
apríl 20253.7262.90682022%––820
maí 20253.0132.35066322%––663
júní 20254.0863.18789922%––899
júlí 20252.3891.86352622%––526
ágúst 20252.8122.19361922%––619
september 20252.1721.69447822%––478
október 20252.3751.85252322%––523
nóvember 20252.1631.68747622%––476
desember 20251.3181.02829022%–101189
janúar 20263.7301.9231.80748,5%––1.807
febrúar 20262.3692.688−320−13,5%––−320
mars 20263.9053.38751813,3%––518
apríl 20264.2733.34492921,7%5–924
maí 20261.9421.52641521,4%––415
júní 20261.16592623920,5%––239
júlí 20263.5532.74580822,7%––808
ágúst 202645235310022%10–89
september 2026––––0–0
Samtals53.79842.16811.62921,6%1514511.470

Heimild: G/L færslur á rekstrarreikningslyklum í CRONUS IS (umhverfi „current“), sóttar 7. október 2026. Tekjur = lyklar 6100–6995. Kostnaðarverð = lyklar 7100–7995 (innkaup, birgðaleiðréttingar og kostnaðarverð seldra vara). Rekstrargjöld = lyklar 8000–8695, 8910 og 60410. Afskriftir = lyklar 8800–8890. Gengismunur á lyklum 9330/9340 nettar sig út í 0.

Það sem dæmi sýnir
  • Einföld spurning skilar greiningu og myndrænni framsetningu
  • Claude greinir frá forsendum sínum, t.d. hvaða lyklar teljast tekjur
  • Claude bendir á frávik í stað þess að fela þau
Hafðu í huga
  • Lesaðgangur nægir fyrir svona greiningu
  • Berðu lykiltölur saman við staðlaðar skýrslur áður en ákvarðanir eru teknar
  • CRONUS IS er sýnifyrirtæki Microsoft og tölurnar eru ekki raunverulegur rekstur
UPPSETNING

Fjögur skref að tengingu

BC stjórnandi stillir MCP þjóninn, forrit er skráð í Microsoft Entra ID, Claude er tengt og loks er tengingin prófuð. Við getum aðstoðað við öll skrefin.

1
Stilla MCP þjóninn í Business Central
Business Central stjórnandi

Stjórnandi velur hvaða gögn og aðgerðir Claude má nota. Ef aðeins á að lesa gögn má nota innbyggðu sjálfgefnu stillinguna.

2
Skrá forrit í Microsoft Entra ID
Tæknistjóri · samþykki tenant admin

Claude fær sitt eigið skráða forrit með heimild til að tengjast Business Central fyrir hönd notandans.

3
Tengja Claude
Notandi eða Claude stjórnandi

BC er bætt við sem tengingu (connector) í Claude með slóð MCP þjónsins og upplýsingum um umhverfi og fyrirtæki.

4
Prófa tenginguna
Notandi

Spurðu Claude að einhverju einföldu, t.d. „Hverjir eru 10 stærstu viðskiptavinirnir?“

 

Tölum saman

Viltu vita hvort Copilot eða agentar henta þínum rekstri? Við förum yfir ferlana með þér og finnum fyrstu skrefin.

Spjöllum samanTil baka á gervigreind