Copilot eða fulltrúi, hver er munurinn?

Copilot hjálpar notandanum við dagleg verkefni í Business Central. Fulltrúar geta unnið heila ferla sjálfvirkt.

GRUNNATRIÐIN

Copilot eða fulltrúi (Agent)

Microsoft gerir skýran greinarmun á þessu tvennu. Munurinn felst í því hver hefur frumkvæðið og hvernig greitt er.

Copilot

Aðstoðarmaður sem vinnur með þér.

Copilot styður notandann við dagleg verkefni í Business Central.

Hver hefur frumkvæðið?

Notandinn biður um aðstoð eða notar Copilot-aðgerð og Copilot aðstoðar við verkefnið.

Hentar vel þegar

Starfsmaðurinn á áfram að stýra vinnunni en vill vinna hana hraðar og með minni fyrirhöfn.

Fulltrúar

Stafrænir aðstoðarmenn sem geta tekið að sér skilgreinda ferla.

Fulltrúar geta brugðist við atburðum og unnið afmarkað verkefni með minni íhlutun starfsmanns.

Hver hefur frumkvæðið?

Fulltrúi getur brugðist við skilgreindum atburði, til dæmis þegar erindi eða gögn berast.

Hentar vel þegar

Verkefnið er endurtekið, reglubundið og hægt er að skilgreina með skýrum hætti hvað á að gera.

Einföld þumalputtaregla: Copilot hjálpar þér að vinna verkið hraðar. Fulltrúi vinnur meira af verkinu fyrir þig.

FYLGIR LEYFINU

Copilot í Business Central

Copilot fylgir BC í skýinu. Hann þarf hvorki flókna uppsetningu né þjálfun á eigin gögnum og birtist sem Copilot-tákn á síðum eða í spjallglugganum.

Án aukakostnaðar
Innifalið í BC-leyfinu, án lágmarksfjölda notenda.
Örugg gögn
Erfir heimildir notandans. Gögn eru ekki notuð til að þjálfa líkön og fara ekki út fyrir gagnamörk ESB.
Virkar með sérlausnum
Spjall og greining virkar á sérsniðnar töflur og síður.
Getur leitað á vefnum
Sumar aðgerðir geta sótt opinberar upplýsingar af vefnum ef stjórnandi leyfir það.

Fyrir alla notendur

SPJALL

Finnur færslur og gögn og útskýrir reiti, ferla og virkni, líka úr viðbótum. Nýtt spjallviðmót kemur í BC29.

ANALYST ASSIST

Finnur færslur og gögn og útskýrir reiti, ferla og virkni, líka úr viðbótum. Nýtt spjallviðmót kemur í BC29.

SAMANTEKTIR

Dregur færslu saman í nokkra lykilpunkta sem miðast við hlutverk notandans.

AUTOFILL (á ensku)

Stingur upp á gildum í reiti á spjöldum og skjölum.

Fjármál

BANKAAFSTEMMING

Lausnin heldur utan um virðisaukaskattsuppgjör og sendir með rafrænum hætti til yfirvalda. Lausnin reiknar uppgjörið og sannvottar áður en möguleiki er á að senda það rafrænt inn.

Pörun rafrænna reikninga

Parar rafræna reikninga frá lánardrottnum við innkaupapantanir og flaggar frávik.

Sala og markaðsmál

TILLÖGUR AÐ SÖLULÍNUM (Á ENSKU)

Finnur réttar vörulínur á tilboð eða pöntun út frá texta, samtali eða skrá.

Markaðstexti

Skrifar vörulýsingar út frá eigindum vöru og völdum tón. Getur birt þær beint í Shopify.

Birgðir, sjálfbærni og uppsetning

STAÐGENGILSVÖRUR (AÐEINS ENSKA)

Leggur til aðrar vörur þegar vara er uppseld eða hætt í sölu.

Losun gróðurhúsalofttegunda

Áætlar losun í sjálfbærnibókum út frá lýsingu og breytum.

Númeraraðir

Leggur til forskeyti, snið og lengd númeraraða.

Dæmi um notkun

Greining í lista með Analysis assist

Sölustjóri opnar lista yfir bókaðar sölufærslur og biður Copilot um greiningu á venjulegu máli. Copilot setur upp flokkun og samtölur á nokkrum sekúndum, án þess að gögnin séu flutt í Excel.

Sjá dæmi til hliðar. Copilot styður íslensku ekki að fullu enn sem komið er, svo dæmið er á ensku.

Notandi skrifar

Show sales by customer group and month, largest first

Copilot

Setur upp greiningu á listanum:

  • Flokkar eftir viðskiptavinaflokki og mánuði
  • Leggur saman upphæðir
  • Raðar frá stærsta til minnsta
GREITT EFTIR NOTKUN

Fulltrúar og hvað þeir gera

Fulltrúar vinna sjálfvirkt í bakgrunni og eru gjaldfærðir í Copilot Credits. Þeir útbúa drög og starfsmaður samþykkir. Setja þarf upp greiðslumódel áður en þeir eru teknir í notkun.

Sölupöntunarfulltrúi

1
Viðskiptavinur

Sendir beiðni um tilboð í tölvupósti

2
Fulltrúi

Tekur við póstinum og býr til verk

3
Starfsmaður

Staðfestir beiðni

4
Fulltrúi

Finnur viðskiptavininn, vörur og birgðastöðu og býr til tilboð

5
Starfsmaður

Samþykkir póst og tilboð

6
Fulltrúi

Sendir tilboðið og breytir því í pöntun við staðfestingu

7
Starfsmaður

Samþykkir staðfestingarpóst

3, 5 og 7:  Skref þar sem starfsmaður samþykkir

Hvað hann gerir
  • Les meginmál og PDF- eða myndaviðhengi
  • Finnur viðskiptavin eingöngu út frá netfangi sendanda, til að hindra að einhver þykist vera viðskiptavinur
  • Finnur vörur eftir númeri, GTIN, tilvísunum og eigindum, einnig með leit
  • Getur reiknað fyrsta mögulega afhendingardag
Gott að vita
  • Býr alltaf fyrst til sölutilboð, sem hefur ekki áhrif á áætlanir eða frátekningar
  • Gæði vöruupplýsinga ráða miklu um árangur
  • Ný gögn geta verið allt að 15 mínútur að verða leitarhæf
Takmarkanir
  • Ef póstur er áframsendur er netfang þess sem áframsendi notað
  • Ef Copilot Credits klárast hættir hann að vinna nýja pósta þar til inneign er bætt við
Kostnaður (Copilot Credits)

Greina innkominn póst 2

Viðhengi með sölugögnum 5

Kanna birgðastöðu 5

Stofna eða uppfæra tilboð 5

Stofna eða uppfæra pöntun 5

Útbúa svarpóst 2

Dæmi frá Microsoft: 100 beiðnir á mánuði, helmingur með viðhengi ≈ 1.650 Credits.

 

Dæmi um notkun

Frá fyrirspurn að tilboði

Viðskiptavinur sendir fyrirspurn í pósthólf sölunnar. Fulltrúi finnur viðskiptavininn út frá netfanginu, flettir upp vörunum, kannar birgðir og útbýr tilboð. Sölufulltrúi les yfir svarpóstinn og smellir á samþykkja.

Sjá dæmi til hliðar. Fulltrúi styður ekki íslensku enn sem komið er, svo dæmið er á ensku.

Tölvupóstur frá viðskiptavini

Hi, could you send us a quote for 20 office chairs and 5 standing desks? We need delivery within two weeks.

Fulltrúi
  • Finnur viðskiptavininn út frá netfangi
  • Finnur báðar vörurnar og kannar birgðir
  • Útbýr sölutilboð og svarpóst með PDF
  • Bíður eftir samþykki sölufulltrúa

Innkaupafulltrúi

Tekur við reikningum frá lánardrottnum í PDF, les þá og útbýr drög að innkaupareikningi sem starfsmaður fer yfir. Hann bókar aldrei sjálfur.

1
Lánardrottinn

Reikningur berst í vaktað pósthólf

2
Fulltrúi

Flytur PDF inn sem rafrænt skjal

3
Fulltrúi

Les reikninginn með OCR

4
Fulltrúi

Finnur lánardrottin eða býður að stofna hann

5
Fulltrúi

Útbýr drög og parar línur við innkaupapantanir

6
Starfsmaður

Fer yfir drögin og skýringar fulltrúans

7
Fulltrúi

Gerir drögin að óbókuðum innkaupareikningi

6: Skref þar sem starfsmaður samþykkir

Hvað hann gerir
  • Leggur til reikningslínur út frá sögu lánardrottins og vörpun á fjárhagslykla
  • Sýnir við hvern reit hvers vegna gildið var valið
  • Nýr lánardrottinn er stofnaður læstur þar til hann hefur verið samþykktur
Nýtt í BC29
  • Pörun notar líka upphæð línu og áætlaðan móttökudag, sem skiptir máli fyrir þjónustulínur
  • Viðvaranir í drögum ná líka til upphæða, ekki bara magns
Takmarkanir
  • Engin samþykktarferli og engin frávikagreining
  • Les aðeins PDF: hámark 10 viðhengi, 10 síður og 5 MB á skrá
  • Hámark 100 póstar og 500 reikningar á dag
Kostnaður (Copilot Credits)

Vinna reikning 50

Hver reikningslína 5

Póstur án gilds reiknings 0

Dæmi Microsoft: 100 reikningar með 3 línum ≈ 6.500 Credits á mánuði.

Dæmi um notkun

Reikningur frá birgja í PDF

Reikningur með þremur línum berst í sameiginlegt pósthólf bókhaldsins. Fulltrúi les hann, finnur lánardrottininn, parar línurnar við opna innkaupapöntun og útbýr drög. Bókari fer yfir og staðfestir.

Myndrænt dæmi. Kostnaður:
50 + 3 × 5 = 65 Credits.

Viðhengi í tölvupósti

Reikningur.pdf · 3 línur · tengist innkaupapöntun

Fulltrúi

  • Les reikninginn og finnur lánardrottin
  • Parar allar þrjár línurnar við innkaupapöntunina
  • Útskýrir hvers vegna hver lykill var valinn
  • Útbýr drög sem bókari samþykkir

Kostnaðarfulltrúi

Lausn fyrir útlagðan kostnað. Starfsmenn senda kvittanir úr vefappi, farsímaappi eða tölvupósti og fulltrúinn býr til kostnaðarfærslur og skýrslur sem fara í samþykkt.
Starfsmenn þurfa ekki Business Central leyfi.

Hvað hann gerir
  • Les söluaðila, upphæð, dagsetningu og flokk af kvittun
  • Reiknar akstur út frá upphafs- og endastað
  • Flokkar kostnað í skýrslur sem fara í samþykktarferli
  • Athugar bæði fastar reglur og stefnur skrifaðar á venjulegu máli
Nýtt í BC29
  • Akstursgjöld eftir tímabili og tegund ökutækis
  • AI-samþykktir, en lokaákvörðunin er alltaf hjá manneskju
  • Sjálfvirkur útreikningur á VSK
  • Betri greining á tvíteknum kostnaði
  • Íslenska bætist við sem stutt tungumál
Takmarkanir
  • Er enn í preview og háð viðbótarskilmálum
  • Ef VSK-útreikningur er virkur þarf bókari að staðfesta hann fyrir bókun
Kostnaður (Copilot Credits)

Hver kvittun 50

Sama gjald óháð fjölda lína á kvittuninni.

 

Dæmi um notkun

Reikningur frá birgja í PDF

Reikningur með þremur línum berst í sameiginlegt pósthólf bókhaldsins. Fulltrúinn les hann, finnur lánardrottininn, parar línurnar við opna innkaupapöntun og útbýr drög. Bókari fer yfir og staðfestir.

Myndrænt dæmi. Kostnaður:
50 + 3 × 5 = 65 Credits.

Viðhengi í tölvupósti

Reikningur.pdf · 3 línur · tengist innkaupapöntun

Fulltrúi

  • Les reikninginn og finnur lánardrottin
  • Parar allar þrjár línurnar við innkaupapöntunina
  • Útskýrir hvers vegna hver lykill var valinn
  • Útbýr drög sem bókari samþykkir
NÝTT Í BC29

Almennar umbætur á fulltrúum

Þessar breytingar ná til allra fulltrúa.

Sameiginlegur verkefnagluggi
Öll verkefni frá öllum fulltrúum á einum stað.
Yfirferð beint á síðum
Tillögur fulltrúa birtast í samhengi og hægt er að breyta þeim eða samþykkja þar.
Færslur til yfirferðar
Listar sýna hvaða færslur fulltrúar hafa breytt og þarf að fara yfir.
Uppruni færlsna
Sýna hvort notandi, kerfi eða fulltrúi stofnaði eða breytti færslu.
Heimildir eftir þörfum
Hægt er að veita fulltrúa viðbótarheimildir þegar hann biður um þær.
Nýtt verk hjá fulltrúa
Sérstök aðgerð til að hefja nýtt verk hjá fulltrúa.
ÁVINNINGUR

Hvers vegna að nota fulltrúa?

Minni handavinna
Pantanir, reikningar og kostnaðarskýrslur vinnast í bakgrunni.
Notandinn hefur lokaorðið
Fulltrúar útbúa drög og notandinn samþykkir. Ekkert er bókað eða sent án samþykkis.
Rekjanleiki og öryggi
Hver fulltrúi vinnur innan eigin heimilda og það sést hvaða gögn hann setti inn.
Einföld uppsetning
Fulltrúar Microsoft eru innbyggðir og þurfa aðeins stillingu og virkjun.
Áætlun

Hvað kosta fulltrúar á mánuði?

Reiknivélin notar gjaldskrá Microsoft fyrir Copilot Credits. Tölurnar eru dæmi sem þú getur breytt. Verð á hverjum Credit fer eftir samningi.

Sölupöntunarfulltrúi
Innkaupafulltrúi
Kostnaðarfulltrúi
Sölupöntunarfulltrúi–
Innkaupafulltrúi–
Kostnaðarfulltrúi–
Samtals á mánuði–Copilot Credits

Formúlur: SOA = (14 + 5 × hlutfall viðhengja) × beiðnir. PA = (50 + 5 × línur) × reikningar. EA = 50 × kvittanir.

Gervigreind þróast hratt

Virkni, leyfismódel, tungumálastuðningur og framboð AI-lausna í Business Central geta breyst. Þess vegna er mikilvægt að meta forsendur fyrir hvert verkefni.

  • Hvaða AI-virkni er tiltæk í viðkomandi Business Central umhverfi?
  • Hvaða lausn hentar ferlinu og markmiðunum best?
  • Hver er áætlaður kostnaður og notkun?
  • Hvernig er öryggi, aðgangsstýring og meðferð gagna útfærð?
  • Dugar stöðluð lausn eða þarf sérhæfða útfærslu?
Til baka á gervigreind
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um þessa Business Central? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband um hæl.