Advania Greiðslukortauppgjör

Advania Card Settlements

Lykilvirkni

Advania Greiðslukortauppgjör tengir Microsoft Dynamics 365 Business Central við kortagreiðsluþjónustur og sjálfvirknivæðir vinnslu daglegra kortauppgjöra. Lausnin sækir uppgjörsgögn frá virkum greiðsluþjónustum og færir þau inn í Business Central, þar sem hægt er að skoða uppgjör, gjöld og greiðslulotur á einum stað.

  • Stuðningur við Teya
  • Tenging söluaðilareikninga við banka- og fjárhagsreikninga í Business Central.
  • Handvirkur eða sjálfvirkur innlestur uppgjöra samkvæmt áætlun.
  • Sjálfvirk stofnun greiðslna og gjalda í færslubók.
  • Betri yfirsýn og einfaldara, skilvirkara uppgjörs- og bókunarferli.

Uppsetning

Áður en hægt er að nota lausnina þarf að fara í gegnum ákveðna uppsetningu. Við leiðum þig í gegnum skrefin sem þarf að klára þannig að þú getir byrjað fljótt og örugglega.

Uppsetningarskjal

Verð

Mánaðarverð vörunnar er reiknað út frá fjölda notenda með úthlutuð Business Central leyfi.

Ótakmarkaður notandi: 2.000 kr. án vsk.

Viltu prufa?

Advania Greiðslukortauppgjör er hægt að prufa frítt með því að sækja viðbótina í AppSource hjá Microsoft, beint inn í Business Central.
Ef viðbótin hentar er svo lítið mál að virkja áskriftina.

Prufaðu frítt
Hvernig sæki ég viðbót?

Viltu aðstoð við uppsetningu?

Advania býður upp á fast verð í uppsetningu á öllum Business Central lausnum sínum. Ef myndböndin eru ekki nóg eða þú vilt einfaldlega fá aðstoð, þá geturðu fengið fast verð í það.

Eftirfarandi er gert þegar Advania Greiðslukortauppgjör er sett upp út frá föstu verði.

  • Viðbótin sótt í AppSource og sett upp í Business Central.
  • Advania Greiðslukortauppgjör virkjað.
  • Nauðsynlegar grunnstillingar yfirfarnar og stilltar.
  • Uppsetning greiðslukorta og tengdra uppgjörsupplýsinga yfirfarin.
  • Farið yfir hvernig uppgjör greiðslukorta er meðhöndlað í Business Central.
  • Lausnin yfirfarin með viðskiptavini og sannreynt að uppsetning sé tilbúin til notkunar.

Með uppsetningarþjónustunni færðu aðstoð sérfræðings við að koma lausninni rétt upp í Business Central, yfirfara nauðsynlegar stillingar og tryggja að þú sért tilbúin/n að byrja að nota lausnina.

Þannig sparar þú tíma við uppsetningu og færð jafnframt leiðsögn um helstu virkni lausnarinnar.

Kennsla og ráðgjöf

  • Kennsla á helstu virkni Advania Greiðslukortauppgjörs.
  • Farið yfir hvernig greiðslukortauppgjör er sótt og unnið.
  • Farið yfir hvernig færslur eru paraðar við færslur í Business Central.
  • Sýnt hvernig uppgjör er bókað og hvernig hægt er að yfirfara niðurstöður.
  • Ráðgjöf um daglega notkun lausnarinnar og helstu atriði sem gott er að hafa í huga.

Með uppsetningarþjónustu Advania færðu lausnina tilbúna til notkunar og nauðsynlega þekkingu til að geta tekið við daglegri vinnslu.

Niðurstaðan: Minni tími fer í uppsetningu og þú kemst hraðar í að nýta lausnina.

Verð í uppsetningu

Verð: 54.000 kr. án vsk.