Lykilvirkni
- Söluskjöl send í skjalasendingarbiðröð svo notandi þurfi ekki að bíða eftir samskiptum.
 - Verkröð vaktar síðan skjalasendingarbiðröð.
 - Sendir skjöl í tölvupósti (með viðhengi) og rafrænt (skeytamiðlun).
 - Útsending innkaupapantana, ítrekun og áminning á þeim.
 - Útsending viðskiptayfirlita í tölvupósti.
 - Mismundandi textar í efni (e. subject) fyrir söluskjöl í tölvupósti.
 - Einnig hægt að láta kerfið stofna pdf skjöl til að geyma í viðhengjagrunni.
 
Uppsetning
Áður en hægt er að nota lausnina þarf að fara í gegnum ákveðna uppsetningu. Við leiðum þig í gegnum skrefin sem þarf að klára þannig að þú getir byrjað fljótt og örugglega.
Verð
Mánaðarverð vörunnar er reiknað út frá fjölda notenda með úthlutuð Business Central leyfi.
Ótakmarkaður notandi: 2.650 kr. án vsk.
Viltu prufa?
Advania Document Sending Service er hægt að prufa frítt með því að sækja viðbótina í AppSource hjá Microsoft, beint inn í Business Central.
Ef viðbótin hentar er svo lítið mál að virkja áskriftina.