Copilot eða agentar, hver er munurinn?

Copilot hjálpar notandanum við dagleg verkefni í Business Central. Agentar geta unnið heila ferla sjálfvirkt.

GRUNNATRIÐIN

Copilot eða Agents

Microsoft gerir skýran greinarmun á þessu tvennu. Munurinn felst í því hver hefur frumkvæðið og hvernig greitt er.

Copilot

Aðstoðarmaður sem vinnur með þér.

Copilot styður notandann við dagleg verkefni í Business Central.

Hver hefur frumkvæðið?

Notandinn biður um aðstoð eða notar Copilot-aðgerð og Copilot aðstoðar við verkefnið.

Hentar vel þegar

Starfsmaðurinn á áfram að stýra vinnunni en vill vinna hana hraðar og með minni fyrirhöfn.

Agentar

Stafrænir aðstoðarmenn sem geta tekið að sér skilgreinda ferla.

Agentar geta brugðist við atburðum og unnið afmarkað verkefni með minni íhlutun starfsmanns.

Hver hefur frumkvæðið?

Agent getur brugðist við skilgreindum atburði, til dæmis þegar erindi eða gögn berast.

Hentar vel þegar

Verkefnið er endurtekið, reglubundið og hægt er að skilgreina með skýrum hætti hvað á að gera.

Einföld þumalputtaregla: Copilot hjálpar þér að vinna verkið hraðar. Agent vinnur meira af verkinu fyrir þig.

FYLGIR LEYFINU

Copilot í Business Central

Copilot fylgir BC í skýinu. Hann þarf hvorki flókna uppsetningu né þjálfun á eigin gögnum og birtist sem Copilot-tákn á síðum eða í spjallglugganum.

Án aukakostnaðar
Innifalið í BC-leyfi og ekkert lágmark á fjölda notenda.
Örugg gögn
Erfir heimildir notandans. Gögn eru ekki notuð til að þjálfa líkön og fara ekki út fyrir gagnamörk ESB.
Þekkir sérlausnir að hluta
Spjall og greining virkar á sérsniðnar töflur og síður.
Getur leitað á vefnum
Sumar aðgerðir geta sótt opinberar upplýsingar af vefnum ef stjórnandi leyfir það.

Fyrir alla notendur

SPJALL

Finnur færslur og gögn og útskýrir reiti, ferla og virkni, líka úr viðbótum. Nýtt spjallviðmót kemur í BC29.

ANALYST ASSIST

Finnur færslur og gögn og útskýrir reiti, ferla og virkni, líka úr viðbótum. Nýtt spjallviðmót kemur í BC29.

SAMANTEKTIR

Dregur færslu saman í nokkra lykilpunkta sem miðast við hlutverk notandans.

AUTOFILL (á ensku)

Stingur upp á gildum í reiti á spjöldum og skjölum.

Fjármál

BANKAAFSTEMMING

Lausnin heldur utan um virðisaukaskattsuppgjör og sendir með rafrænum hætti til yfirvalda. Lausnin reiknar uppgjörið og sannvottar áður en möguleiki er á að senda það rafrænt inn.

Pörun rafrænna reikninga

Parar rafræna reikninga frá lánardrottnum við innkaupapantanir og flaggar frávik.

Sala og markaðsmál

TILLÖGUR AÐ SÖLULÍNUM (Á ENSKU)

Finnur réttar vörulínur á tilboð eða pöntun út frá texta, samtali eða skrá.

Markaðstexti

Skrifar vörulýsingar út frá eigindum vöru og völdum tón. Getur birt þær beint í Shopify.

Birgðir, sjálfbærni og uppsetning

STAÐGENGILSVÖRUR (AÐEINS ENSKA)

Leggur til aðrar vörur þegar vara er uppseld eða hætt í sölu.

Losun gróðurhúsalofttegunda

Áætlar losun í sjálfbærnibókum út frá lýsingu og breytum.

Númeraraðir

Leggur til forskeyti, snið og lengd númeraraða.

Dæmi um notkun

Greining í lista með Analysis assist

Sölustjóri opnar lista yfir bókaðar sölufærslur og biður Copilot um greiningu á venjulegu máli. Copilot setur upp flokkun og samtölur á nokkrum sekúndum, án þess að gögnin séu flutt í Excel.

Notandi skrifar

Show sales by customer group and month, largest first

Copilot

Setur upp greiningu á listanum:

  • Flokkar eftir viðskiptavinaflokki og mánuði
  • Leggur saman upphæðir
  • Raðar frá stærsta til minnsta
Greitt eftir notkun

Agentarnir og hvað þeir gera

Agentar vinna sjálfvirkt í bakgrunni og eru gjaldfærðir í Copilot Credits. Þeir útbúa drög og starfsmaður samþykkir. Setja þarf upp greiðslumódel áður en þeir eru teknir í notkun.

Sales Order Agent

1
Viðskiptavinur

Sendir beiðni um tilboð í tölvupósti

2
Agent

Tekur póstinn og býr til verk

3
Starfsmaður

Staðfestir innkomna beiðni

4
Agent

Finnur viðskiptavin, vörur og birgðastöðu og býr til tilboð

5
Starfsmaður

Samþykkir svarpóst og tilboð

6
Agent

Sendir tilboðið og breytir því í pöntun við staðfestingu

7
Starfsmaður

Samþykkir staðfestingarpóst

3, 5 og 7: Skref þar sem starfsmaður samþykkir

Hvað hann gerir
  • Les meginmál og PDF- eða myndaviðhengi
  • Finnur viðskiptavin eingöngu út frá netfangi sendanda, til að hindra að einhver þykist vera viðskiptavinur
  • Finnur vörur eftir númeri, GTIN, tilvísunum, eigindum og loðinni leit
  • Getur reiknað fyrsta mögulega afhendingardag
Gott að vita
  • Býr alltaf fyrst til sölutilboð, sem hefur ekki áhrif á áætlanir eða frátekningar
  • Gæði vöruupplýsinga ráða miklu um árangur
  • Ný gögn geta verið allt að 15 mínútur að verða leitarhæf
Takmarkanir
  • Ef pósti er áframsent er netfang þess sem áframsendi notað
  • Ef Copilot Credits klárast hættir hann að vinna nýja pósta þar til inneign kemur aftur
Kostnaður (Copilot Credits)

Greina innkominn póst 2

Viðhengi með sölugögnum 5

Kanna birgðastöðu 5

Stofna eða uppfæra tilboð 5

Stofna eða uppfæra pöntun 5

Útbúa svarpóst 2

Dæmi Microsoft: 100 beiðnir á mánuði, helmingur með viðhengi ≈ 1.650 Credits.

 

Dæmi um notkun

Tilboðsbeiðni verður að pöntun

Viðskiptavinur sendir fyrirspurn í pósthólf sölunnar. Agentinn finnur viðskiptavininn út frá netfanginu, flettir upp vörunum, kannar birgðir og útbýr tilboð. Sölufulltrúi les yfir svarpóstinn og smellir á samþykkja.

Myndrænt dæmi. Agentinn styður ekki íslensku formlega, svo dæmið er á ensku.

Tölvupóstur frá viðskiptavini

Hi, could you send us a quote for 20 office chairs and 5 standing desks? We need delivery within two weeks.

Agentinn
  • Finnur viðskiptavininn út frá netfangi
  • Finnur báðar vörurnar og kannar birgðir
  • Útbýr sölutilboð og svarpóst með PDF
  • Bíður eftir samþykki sölufulltrúa

Payables Agent

Tekur við reikningum frá lánardrottnum í PDF, les þá og útbýr drög að innkaupareikningi sem starfsmaður fer yfir. Hann bókar aldrei sjálfur.

1
Lánardrottinn

Reikningur berst í vaktað pósthólf

2
Agent

Flytur PDF inn sem rafrænt skjal

3
Agent

Les reikninginn með OCR

4
Agent

Finnur lánardrottin eða býður að stofna hann

5
Agent

Útbýr drög og parar línur við innkaupapantanir

6
Starfsmaður

Fer yfir drögin og skýringar agentsins

7
Agent

Gerir drögin að óbókuðum innkaupareikningi

6: Skref þar sem starfsmaður samþykkir

Hvað hann gerir
  • Leggur til reikningslínur út frá sögu lánardrottins og vörpun á fjárhagslykla
  • Sýnir við hvern reit hvers vegna gildið var valið
  • Nýr lánardrottinn er stofnaður læstur þar til hann hefur verið samþykktur
Nýtt í BC29
  • Pörun notar líka upphæð línu og áætlaðan móttökudag, sem skiptir máli fyrir þjónustulínur
  • Viðvaranir í drögum ná líka til upphæða, ekki bara magns
Takmarkanir
  • Engin samþykktarferli og engin frávikagreining
  • Les aðeins PDF: hámark 10 viðhengi, 10 síður og 5 MB á skrá
  • Hámark 100 póstar og 500 reikningar á dag
Kostnaður (Copilot Credits)

Vinna reikning50

Hver reikningslína5

Póstur án gilds reiknings0

Dæmi Microsoft: 100 reikningar með 3 línum ≈ 6.500 Credits á mánuði.

 

Dæmi um notkun

Reikningur frá birgja í PDF

Reikningur með þremur línum berst í sameiginlegt pósthólf bókhaldsins. Agentinn les hann, finnur lánardrottininn, parar línurnar við opna innkaupapöntun og útbýr drög. Bókari fer yfir og staðfestir.

Myndrænt dæmi. Kostnaður:
50 + 3 × 5 = 65 Credits.

Viðhengi í tölvupósti

Reikningur.pdf · 3 línur · tengist innkaupapöntun

Agentinn

  • Les reikninginn og finnur lánardrottin
  • Parar allar þrjár línurnar við innkaupapöntunina
  • Útskýrir hvers vegna hver lykill var valinn
  • Útbýr drög sem bókari samþykkir

Expense Agent

Lausn fyrir útlagðan kostnað. Starfsmenn senda kvittanir úr vefappi, farsímaappi eða tölvupósti og agentinn býr til kostnaðarfærslur og skýrslur sem fara í samþykkt.
Starfsmenn þurfa ekki Business Central leyfi.

Hvað hann gerir
  • Les söluaðila, upphæð, dagsetningu og flokk af kvittun
  • Reiknar akstur út frá upphafs- og endastað
  • Flokkar kostnað í skýrslur sem fara í samþykktarferli
  • Athugar bæði fastar reglur og stefnur skrifaðar á venjulegu máli
Nýtt í BC29
  • Akstursgjöld eftir tímabili og tegund ökutækis
  • AI-samþykktir, en lokaákvörðunin er alltaf hjá manneskju
  • Sjálfvirkur útreikningur á VSK
  • Betri greining á tvíteknum kostnaði
  • Íslenska bætist við sem stutt tungumál
Takmarkanir
  • Er enn í preview og háð viðbótarskilmálum
  • Ef VSK-útreikningur er virkur þarf bókari að staðfesta hann fyrir bókun
Kostnaður (Copilot Credits)

Hver kvittun 50

Sama gjald óháð fjölda lína á kvittuninni.

 

Dæmi um notkun

Reikningur frá birgja í PDF

Reikningur með þremur línum berst í sameiginlegt pósthólf bókhaldsins. Agentinn les hann, finnur lánardrottininn, parar línurnar við opna innkaupapöntun og útbýr drög. Bókari fer yfir og staðfestir.

Myndrænt dæmi. Kostnaður:
50 + 3 × 5 = 65 Credits.

Viðhengi í tölvupósti

Reikningur.pdf · 3 línur · tengist innkaupapöntun

Agentinn

  • Les reikninginn og finnur lánardrottin
  • Parar allar þrjár línurnar við innkaupapöntunina
  • Útskýrir hvers vegna hver lykill var valinn
  • Útbýr drög sem bókari samþykkir
NÝTT Í BC29

Almennar umbætur á agentum

Þessar breytingar ná til allra agenta.

Sameiginlegur verkefnagluggi
Öll verkefni frá öllum agentum á einum stað.
Yfirferð beint á síðum
Tillögur agenta birtast í samhengi og hægt er að breyta þeim eða samþykkja þar.
Tilkynningar í listum
Listar sýna hvaða færslur agentar hafa breytt og þarf að fara yfir.
Merkingar í listum
Sýna hvort notandi, kerfi eða agent stofnaði eða breytti færslu.
Einfaldari heimildir
Hægt er að veita agent viðbótarheimildir þegar hann biður um þær.
Endurbætt viðmót
Sérstök aðgerð til að hefja nýtt verk hjá agent.
ÁVINNINGUR

Hvers vegna að nota agenta?

Minni handavinna
Pantanir, reikningar og kostnaðarskýrslur vinnast í bakgrunni.
Manneskjan ræður
Agentar útbúa drög og starfsmenn samþykkja. Ekkert er bókað eða sent án samþykkis.
Rekjanleiki og öryggi
Hver agent vinnur innan eigin heimilda og það sést hvaða gögn hann setti inn.
Lítil uppsetning
Agentarnir eru innbyggðir og þurfa aðeins stillingu og virkjun.
Áætlun

Hvað kosta agentarnir á mánuði?

Reiknivélin notar gjaldskrá Microsoft fyrir Copilot Credits. Tölurnar eru dæmi sem þú getur breytt. Verð á hverjum Credit fer eftir samningi.

Sales Order Agent
Payables Agent
Expense Agent
Sales Order Agent–
Payables Agent–
Expense Agent–
Samtals á mánuði–Copilot Credits

Formúlur: SOA = (14 + 5 × hlutfall viðhengja) × beiðnir. PA = (50 + 5 × línur) × reikningar. EA = 50 × kvittanir.

Gervigreind þróast hratt

Virkni, leyfismódel, tungumálastuðningur og framboð AI-lausna í Business Central geta breyst. Þess vegna er mikilvægt að meta forsendur fyrir hvert verkefni.

  • Hvaða AI-virkni er tiltæk í viðkomandi Business Central umhverfi?
  • Hvaða lausn hentar ferlinu og markmiðunum best?
  • Hver er áætlaður kostnaður og notkun?
  • Hvernig er öryggi, aðgangsstýring og meðferð gagna útfærð?
  • Dugar stöðluð lausn eða þarf sérhæfða útfærslu?

Tölum saman

Viltu vita hvort Copilot eða agentar henta þínum rekstri? Við förum yfir ferlana með þér og finnum fyrstu skrefin.

Spjöllum samanTil baka á gervigreind