Verkada á Íslandi: Snjallara öryggi og fullkomin tímasetning
Verkada er á mikilli siglingu á íslenskum markaði, og það er engin tilviljun. Sífellt fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að færa sig yfir í öryggislausn sem er hönnuð fyrir skýið frá grunni, uppfærist sjálfkrafa og verður snjallari með hverri uppfærslu. En af hverju einmitt núna? Svarið liggur meðal annars á óvæntum stað: verðmiðanum á minni.
Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna
Þegar minnið verður munaðarvara
Hefðbundin öryggiskerfi byggja á því að safna öllu efni á staðbundna netþjóna, troðfulla af hörðum diskum og vinnsluminni. Því fleiri myndavélar og því hærri upplausn, því meira minni þarf, og þar liggur vandinn.
Á fyrri hluta árs 2026 hefur verð á vinnsluminni (DRAM) fyrir netþjóna rokið upp úr öllu valdi. Sumar greiningar nefna nær 90% hækkun á einum ársfjórðungi, og verð á SSD-geymslum hefur fylgt fast á eftir. Ástæðan er einföld: gervigreindin er að soga til sín nánast alla framleiðslugetu heimsins á minni, og sérfræðingar telja að ástandið haldist út árið 2027.
Fyrir þann sem ætlar að byggja, endurnýja eða stækka hefðbundið upptökukerfi þýðir þetta eitt: reikningurinn hækkar, og hann heldur áfram að hækka.
Hybrid-lausn sem er hönnuð fyrir þennan veruleika
Hér skín Verkada. Í stað þess að reiða sig á miðlægan netþjón stútfullan af diskum geymir hver Verkada-myndavél efnið á innbyggðri SSD-geymslu, og skýið sér um stjórnun, afrit, aðgang og deilingu.
Þetta er hybrid-lausn í bestu merkingu orðsins: þú færð styrk skýsins án þess að þurfa að fjárfesta í dýru minni sem verður sífellt dýrara. Kostnaðurinn verður fyrirsjáanlegur, uppsetningin einföld og kerfið stækkar með þér, ein myndavél í einu, án þess að þú þurfir að kaupa næsta netþjón.
Í markaði þar sem minnið er orðið að munaðarvöru er þetta ekki bara þægilegt. Það er beinlínis skynsamlegt.
Kerfi sem stendur aldrei í stað
Það sem kemur mörgum á óvart við Verkada er hraðinn. Þetta er ekki kerfi sem þú kaupir og gleymir, heldur kerfi stöðugri þróun. Nýir eiginleikar birtast reglulega í gegnum skýið, án þess að þú þurfir að skipta um vélbúnað eða kalla til tæknimann.
Sú öryggismyndavél sem þú kaupir í dag verður einfaldlega öflugri eftir hálft ár. Það er sjaldgæft loforð í heimi vélbúnaðar.
Gervigreindin komin í kjarnann
Það er einmitt gervigreindin sem knýr þessa þróun áfram. Hún er ekki lengur aukahlutur ofan á Verkada, heldur komin í sjálfan kjarna kerfisins.
Í dag getur kerfið greint fólk og farartæki, leitað eftir lýsingu (til dæmis „maður í rauðri úlpu“), lesið bílnúmer, fylgst með umferð og aðsókn og sent viðvaranir í rauntíma. Allt þetta gerist á snjallan hátt, og allt með persónuvernd í huga, meðal annars með því að hylja andlit í rauntíma og með sérsniðnum persónuverndarsvæðum.
Hittu okkur á Haustráðstefnu Advania
Viltu sjá þetta með eigin augum? Á Haustráðstefnu Advania verðum við með bás þar sem þú getur prófað kerfið, séð gervigreindina í verki og rætt sérlausnir sem henta þínu fyrirtæki, hvort sem það er ein starfsstöð eða net útibúa um allt land.
Við bjóðum líka til hliðarviðburðar sem er sérstaklega tileinkaður Verkada: Andlit í móðu en ekki reglurnar.
Compliance and Verkada: Blurring Faces, Not the Rules
AI Out of the Machine
Sjáumst í Hörpu
Skráðu þig á Haustráðstefnu Advania, tryggðu þér sæti á hliðarviðburðinum og fáðu morgunmat með okkur. Komdu við á básnum, prófaðu kerfið og sjáðu af hverju svo mörg íslensk fyrirtæki velja Verkada.
Þessu viltu ekki missa af.