Umsýsla milli fyrirtækja innan samstæðu hefur aldrei verið auðveldari í H3
Mannauðslausnir Advania hafa unnið að því að einfalda alla umsýslu milli fyrirtækja innan samstæðu í H3.
Berglind Lovísa Sveinsdóttir
vörustjóri H3
Með nýjum aðgerðum og vinnslum í H3 getur þú nú sinnt flutningi starfsfólks, gagna og aðgangsstýringum á mun einfaldari og fljótlegri máta en áður.
Við tókum saman þær aðgerðir sem hafa nýlega verið bættar við:
Afrita starfsfólk á milli fyrirtækja
Nú er hægt að afrita starfsfólk beint yfir í annað fyrirtæki innan samstæðunnar – bæði sem launamenn og starfsmenn. Þetta sparar tíma og tryggir samræmi í mannauðsgögnum.
Afrita viðhengi á milli fyrirtækja
Viðbótin gerir þér kleift að flytja viðhengi fljótt og örugglega á milli fyrirtækja með þægilegu viðmóti og góðum síum til að finna réttu skrárnar.
Afrita hlutverk og aðgangsstýringar
Með einum smelli geturðu nú afritað hlutverk og aðgangsstýringar notanda milli fyrirtækja og fengið yfirlit yfir öll hlutverk og aðganga á einum stað.
Þannig verður stjórnun aðganga bæði öruggari og skilvirkari.
Nýjar fyrirspurnir í H3
Við vinnum stöðugt að því að mæta þörfum notenda í H3 með nýjum fyrirspurnum sem auka yfirsýn yfir gögnin:
- Athuga skattkort: Skoðaðu skattkort launamanna þvert á samstæðu.
- Aðgangsyfirlit: Tvær nýjar fyrirspurnir komnar sem sýna aðgangsupplýsingar, hlutverk og réttindi yfir öll fyrirtækin.
Af hverju skiptir þetta máli?
Þessir nýjungar spara tíma, minnka handavinnu og bæta yfirsýn yfir lykilgögn í mannauðsferlum innan samstæðunnar. Þannig gefst meiri tími til að sinna öðrum verkefnum.
Hér má nálgast allar leiðbeiningar um hvernig þú getur byrjað að nýta þér kerfið betur innan samstæðunnar.
Mannauðslausnir Advania
Meiri tími fyrir mannlega þáttinn