Fullt út úr dyrum á morgunverðarfundi Advania um gervigreind
Í gær fór fram morgunverðarfundur um gervigreind í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni. Einnig var sýnt var frá viðburðinum í gegnum streymi á starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri.
Fullt var á viðburðinn og komust færri að en vildu svo það er ljóst að áhuginn á gervigreindinni eykst bara með hverri lausninni sem bætist við flóruna.
Farið var yfir þróun gervigreindarinnar síðan hún komst fyrst í tal og þær lausnir sem eru að nýtast fyrirtækjum hér á landi núna.
Berenice Barrios, forstöðumaður rekstrarlausna hjá Advania, sagði gestum frá Copilot fyrir Microsoft 365 sem kom út í lok ársins 2023. Forritið er strax byrjað að hafa áhrif á það hvernig starfsmenn fyrirtækja vinna, enda er markmiðið með lausninni að spara tíma fólks og einfalda þeim vinnuna. Advania mun bjóða upp á námskeið í notkun Copilot, sem verður nánar auglýst síðar.
Á fundinum voru líka umræður um þau vandamál sem stórfyrirtæki hafa verið að lenda í með ChatGPT, en mörg hafa bannað notkun þess eftir að kóði, mikilvægt trúnaðargagn fyrirtækis, lak í aðalmódelið þeirra. Advania er nú byrjað að bjóða upp á lausn til að tryggja öryggi gagna fyrirtækja hér á landi.
Advania Private ChatGPT er ný lausn sem unnin er í samstarfi við Advania í Bretlandi. Um er að ræða gervigreindartól sem starfsmenn fyrirtækja geta notað með öruggari hætti og tengt við gögn með mismunandi uppruna sem liggja innan veggja fyrirtækisins. Gögnin eru ekki notuð til að þjálfa gervigreindarmódel.
Það skiptir máli að sjá hvar tækifærin liggja og fá sem mest út úr notkun gervigreindarlausna. Því býður Advania upp á stuðning í kringum alla þætti er varða innleiðinguna. Sérstakt Power BI mælaborð inni í kerfinu vakti líka athygli gesta fundarins, en þar geta stjórnendur séð hverjir innan fyrirtækisins eru að nýta sér lausnina og hvernig. Þannig geta fyrirtæki kortlagt notkun gervigreindarinnar innan fyrirtækisins, séð hverjir eru að nota lausnina mest og gætu þar með kennt öðrum sem eru að nota tæknina minna.
Rætt var um algengan misskilning um gervigreindina, eins og að hún hafi mannlega getu og fleira í þeim dúr. Fyrirlesarar ræddu einnig um reglugerð EU varðandi gervigreind sem mögulega tekur gildi í vor eða sumar. Nánari upplýsingar um gervigreind má finna á Advania.is/gervigreind