Copilot fyrir Microsoft 365 er kominn út
Copilot fyrir Microsoft 365 er nú í boði fyrir allar stærðir fyrirtækja og er enginn lágmarksfjöldi sæta.
Fyrirtæki sem eru með með Microsoft 365 Business Standard leyfi eða Microsoft 365 Business Premium leyfi geta nú bætt Copilot ofan á.
Copilot fyrir Microsoft 365 vinnur með hugbúnaði sem er almennt mikið nýttur við leik og störf; Word, Excel, Powerpoint, Outlook, Teams og fleiri. Þetta kraftmikla verkfæri getur t.d. lesið vinnugögn, aukið sköpun í Word, greint gögn í Excel, hannað glærur í Powerpoint og flokkað pósta í Outlook.
Copilot fylgir ströngustu öryggisreglum og er spennandi tól sem styður starfsfólk til aukinnar nýsköpunar og framleiðni. Lausnin er einungis hluti af mörgum spennandi hlutum sem eru að eiga sér stað í gervigreindarvegferð vinnustaða.
Sjáðu veffundinn um gervigreind á vinnustöðum
Fyrirtæki og gervigreind; tækifæri, undirbúningur og raundæmi | Velkomin
Á þessum veffundi heyrum við hvernig hægt er að undirbúa sig fyrir gervigreindarvegferðina. Flutt verða raundæmi um hvernig fyrirtæki gerðu það á hraðan og öruggan hátt.