Auður Inga var áður markaðsstjóri félagsins
01.09.2023Auður í framkvæmdastjórn Advania
Auður Inga Einarsdóttir er nýr framkvæmdastjóri innviðalausna Advania.
Hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins síðastliðin fjögur ár og þar áður sem forstöðumaður notendalausna.
Auður fer fyrir rekstri og þjónustu afgreiðslukerfa og sölu á miðlægum búnaði og notendabúnaði.
Forveri hennar, Hafsteinn Guðmundsson, hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rekstrarlausna af Sigurði Sæberg Þorsteinssyni sem hverfur til annarra starfa innan Advania-samstæðunnar.
„Það er mikill fengur að fá Auði inn í framkvæmdastjórn félagsins. Hún hóf störf hjá okkur fyrir 10 árum, hefur sterka sýn og er mjög farsæll stjórnandi sem hefur einstakt lag á að fá fólk með sér“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania. „Ég er full tilhlökkunar og spennt að takast á við ný og krefjandi verkefni,“ segir Auður Inga Einarsdóttir.
Í framkvæmdastjórn Advania eru nú þau Sigríður Sía Þórðardóttir, Erna Björk Sigurgeirsdóttir, Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigrún Ámundadóttir, Auður Inga Einarsdóttir, Hinrik Sigurður Jóhannesson, Hafsteinn Guðmundsson og Ægir Már Þórisson forstjóri.