TOK2015 og eldra - Hækkun á mótframlagi atvinnurekanda í lífeyrissjóði 1. Júlí 2018
Leiðbeiningar um breytingar á kerfinu í ljósi hækkunar mótframlags atvinnurekenda
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samkomulag um hækkun á framlagi atvinnurekanda í lífeyrissjóði. Hækkar mótframlag atvinnurekanda um 1,5% stig þann 1. júlí 2018.
Þetta samkomulag nær ekki yfir alla lífeyrissjóði eins og t.d. LSR og Lífeyrisjóð bankamanna.
Það er mikilvægt að gera viðkomandi breytingar á réttum tíma, þá má alls ekki keyra inn þessa breytingu ef það er ekki búið að bóka júní launin. Hins vegar er mikilvægt að lesa inn þessa breytingu áður en júlí útborgun er stofnuð.
Hér koma leiðbeiningar:
1. Velja flipann „Launakerfi“
2. Undir aðgerðinni „Greiðslutegundir“ Smella á „Lífeyrissjóðir“
3. Velja lífeyrissjóði sem á að breyta
4. Smella á flipann „Lífeyrissjóðir“
5. Breyta prósentu upphæð
6. Uppfæra
Einnig er hægt að óska eftir aðstoð með því að hafa samband við TOK þjónustuborðið með því að senda tölvupóst á tok@advania.is eða með því að hringja í 440-9000.