Reykjavíkurborg prófar frístundarkerfi Advania
Kerfið býður upp á mikla hagræðingu fyrir starfsfólk borgarinnar.
Reykjavíkurborg hefur fengið afhenta til prófunar Völu Frístund, sem heldur utan um allt sem tengist frístundastarfi Reykjavíkurborgar. Verkefnið var umfangsmikið eins og gefur að skilja, enda er frístundastarf borgarinnar af ýmsum toga.
Kerfið kemur til með að auka sjálfvirkni og einfalda stjórnun upplýsinga sem starfsmenn vilja sjá. Í því er aðgangsstýring sem þýðir að hægt er að vinna nær allar aðgerðir þvert á starfsemina eða niður á einstaka rekstrarþætti. Kerfið heldur meðal annars utan um alla umsýslu, umsóknarferli, daglegar vinnslur, reikningagerð og tölfræði sem tengist frístundastarfi.
Viðtökuprófunum mun ljúka 1. júlí og stefnt er að því að fyrsti hluti kerfisins verði tekinn til notkunar þann 1. ágúst næstkomandi. Búist er við að síðari hluti verkefnisins verði afhentur í lok árs. Vala Frístund er forrituð í Angular JS af starfsmönnum skólalausna hjá Advania og viðmótið er hannað af starfsmönnum veflausna.
„Advania státar af mikilli reynslu í sérsmíði lausna og við leggjum mikla áherslu á að útfæra þær í nánu samráði við viðskiptavini. Samstarfið við Reykjavíkurborg hefur verið gott og við hlökkum til að halda því áfram á meðan við ljúkum við smíði kerfisins“, segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.