Netöryggi snýst um meira en einstakar lausnir
Þegar netöryggismálum er sinnt með mörgum aðskildum lausnum og birgjum getur heildarmyndin tapast. Ábyrgðin verður óskýr, forgangsröðunin flókin og erfitt er að sýna fram á árangur.
Við trúum á aðra nálgun. Netöryggi þarf að vera samfelld vegferð þar sem aðgerðir vinna saman og taka mið af raunverulegri áhættu fyrirtækisins.
Dregið úr áhættu í skrefum
Þú þarft ekki að gera allt í einu. Við hjálpum þér að greina hvar áhættan liggur og forgangsraða næstu skrefum út frá þörfum fyrirtækisins.
Betri yfirsýn og sýnilegri árangur
Fáðu betri yfirsýn yfir netöryggismálin og stuðning við að sýna fram á framvindu, ábyrgð og eftirfylgni.
Einn samstarfsaðili með skýra ábyrgð
Við samhæfum lausnir og samstarfsaðila svo þið þurfið ekki að halda utan um hvert verkefni sjálf.